Já nú erum við svo sannarlega fyrir alvöru farin að lifa góða lífinu hér úti. Öll próf úr sögunni og nú gerum við bara nákvæmlega það sem við viljum. Fór s.s í seinasta á föstudaginn og fékk 7, sem er bara fínt. Til að fagna próflokum komu Hjalti og Harpa í grill til okkar. Vorum með Mojhito í fordrykk, grillbrauð með tómötum og osti í forrétt, piparsteikur með bernais og alles í aðalrétt og svo crepes með nutella í eftirmat = ÁTVEISLA!!! EN UMMMMM hvað þetta var gott

Líka alveg æðislegt að veðrið lék við hvern sinn fingur, sól og logn og góður lofthiti svo við sátum bara úti til að verða 22 að spila og hafa það gott. Gærdagurinn fór svo í ströndina. Mættum þangað uppúr hádegiog vorum í heildina svona 20 stk þarna saman, voða gaman að fara svona margir. Maður er alveg farinn að geta farið útí sjó, auðvitað kalt fyrst en svo bara venst maður því á 1 mín. Þetta er bara orðin einsog á Spáni og lyktin af sólarvörn liggur í loftinu

Við skelltum okkur svo í partý i hinu alræmda Runkehalle hér á Skjoldhoj. Það er sem sagt stigagangur nr. 155 sem hefur fengið þetta skemmtilega nafn

Við erum að tala um að það voru örugglega svona 150 manns þarna - þetta var svakalegt

Nú er kl. 12:30 og við svona tiltölullega nývöknuð. Stefnan er aftur tekin á ströndina í dag, ætlum að hitta fólk þar núna kl. 13. Einsog við höfum alltaf sagt - það er svo sannarlega alltaf nóg að gera hérna, þessir skiptinemar sitja sko ekki auðum höndum. Í kvöld á svo að fjölmenna á Billabong bar niðri bæ þar sem á að horfa á leikinn Þýskaland-Pólland á EM og eru menn gríðarlega spenntir fyrir þessum atburði, sérstaklega Benny sem er þýskur vinur okkar (og dýrkar Steina

) Benny þessi, sem ég hef nú örugglega minnst á áður, er svona ekta þjóðverji hvað það varðar að hann er ótrúlega smámunasamur og vill hafa allt á hreinu. Þessi bar sem stefnan er tekin á er s.s. ekki mjög stór en er búinn að auglýsa að hann ætli að sýna leikinn. Benny vildi nú vera samt alveg viss svo hann fann út hver eigandinn var og sendi honum tölvupóst til að spyrja hvort að leikurinn yrði ekki alveg örugglega sýndur!

Svo er annað mál það að leikurinn byrjar ekki fyrr en kl.21. Benny ætlar samt að mæta kl. 18 og er búinn að draga Steina með sér, en afhverju? Jú því hann vill ná góðum sætum!

að auki þá tímir hann ekki að kaupa sér bjórinn á venjulegu verði svo hann ætlar að nota sér "happy hour" sem er á milli 18-20

hehehehehe hann er snillingur. Ekki samt taka því einsog hann sé einhver nánös og leiðindaskarfur, ALLS EKKI. Okkur líkar alveg ofsalega vel við hann og þeir Steini hafa myndað einskonar bjórdrykkju-team

Einsog ég sagði þá vill hann bara vera með hlutina á hreinu og svo á hann bara ekkert sérstaklega mikinn pening svo happy hour er skiljanlegt.
Jæja best að fara að taka sig til - ströndina kallar. Annars er stefnan í vikunni tekin á annars vegar Legoland og hins vegar Ebeltoft. Fer eftir veðri og vindum hvenær við förum því það á víst að koma rigning einn dag í vikunni og það væri glatað að fara í Legoland akkúrat þá.
På gensyn - Ólöf